Chia grautar eru einstaklega vinsælir um þessar mundir, ýmist sem morgunmatur, eftirréttur eða millimál. Þessi skemmtilegu fræ eru auðvitað einstaklega næringarrík og hafa þann eiginleika að þenjast út og gefa frá sér þykkan vökva sem breytir vökva í hálfgerðan búðing. Margir bæta þeim t.d. í þeytinga eða hræra út í hræragraut á hverjum degi til að … Continue reading →
Þegar tvö ár voru liðin frá því ég opnaði Facebook síðuna Hugmyndir að hollustu langaði mig að gera eitthvað öðruvísi í tilefni áfangans. Úr varð að ég tilkynnti um viðburð á Snapchat – óvissubakstur þar sem þátttakendur fengju aðgang að hráefnalista og svo kæmi ekki í ljós hvað yrði úr honum fyrr en í beinni … Continue reading →
Kínóa er eitt uppáhalds hráefnið mitt vegna þess hversu fjölbreyttir notkunarmöguleikarnir eru, bragðið ljúffengt og næringargildið hátt. Kínóa er mjög próteinríkt og inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar auk þess að færa líkamanum fjöldan allan af vítamínum, steinefnum og plöntunæringarefnum (e. phytochemicals). Ég nota heilt kínóa t.d. sem grunn í máltíðir eða salöt, sem meðlæti og í … Continue reading →
Ég elska hrákökur og ég elska einfaldleika jafnvel enn meira. Best af öllu þykir mér að geta átt ljúffenga og næringarríka köku í frystinum sem er hægt að grípa í og borða frosna ef því er að skipta! Þessi kaka er t.d. afar ljúffeng beint úr frystinum og getur auðveldlega komið í staðinn fyrir ís … Continue reading →
Ef þér finnst hrákökur góðar þá gætu þessar dúllur komið skemmtilega á óvart! Þær eru dálítið óhefðbundnar að því leyti að oft er hneturíkur botn og kremkennd fylling í hrákökum en hér er safarík kaka toppuð með möndlu- og kókoskremi. Þetta er óneitanlega gulrótarkenndara bakkelsi en þessar hefðbundnu gulrótarkökur sem fást í öðru hverju bakaríi, … Continue reading →