Þegar tvö ár voru liðin frá því ég opnaði Facebook síðuna Hugmyndir að hollustu langaði mig að gera eitthvað öðruvísi í tilefni áfangans. Úr varð að ég tilkynnti um viðburð á Snapchat – óvissubakstur þar sem þátttakendur fengju aðgang að hráefnalista og svo kæmi ekki í ljós hvað yrði úr honum fyrr en í beinni … Continue reading →
Nýlega keypti ég mér nokkra poka af makadamíahnetum sem hreinlega kölluðu á mig, þær voru svo ómótstæðilegar og girnilegar. Eftir að hafa geymt þær inni í skáp í nokkra daga og velt fyrir mér hvaða ljúfmeti ég ætti að gera úr þeim fann ég á netinu fjölda uppskrifta að hráfæðiskaramellu sem voru svo einfaldar að … Continue reading →
Þegar lífið gefur mér lífræna tómata þá bý ég til dásamlega sumarsúpu! Þessi varð nú samt eiginlega til fyrir algjöra slysni hjá mér. Ég hafði farið í búð og eins – og ég hef tilhneigingu til að gera – kom ég heim með ógrynnin öll af girnilegum og freistandi hráefnum. Ég stóð uppi með fullt eldhús … Continue reading →