2

Jólamaturinn 2015

Gleðilegan jólaundirbúning! Hér finnurðu innkaupalista yfir allt sem til þarf í þriggja rétta jólamálsverð Hugmynda að hollustu: Bakað hummus með súrsætum perum og sólþurrkaðri tómatasósu Hnetusteik með sætkartöflumús, sérrýsteiktum sveppum og trönuberjasósu Súkkulaðiganache með heslihnetumauki og ferskum berjum Til að létta þér lífið er ég líka með myndir af þeim vörum sem gætu verið nýjar … Continue reading →

kínóakókos

Kókos- og kínóa súkkulaðidraumur

Kínóa er eitt uppáhalds hráefnið mitt vegna þess hversu fjölbreyttir notkunarmöguleikarnir eru, bragðið ljúffengt og næringargildið hátt. Kínóa er mjög próteinríkt og inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar auk þess að færa líkamanum fjöldan allan af vítamínum, steinefnum og plöntunæringarefnum (e. phytochemicals). Ég nota heilt kínóa t.d. sem grunn í máltíðir eða salöt, sem meðlæti og í … Continue reading →

súpa1-01

Rjómakennd blómkáls- og sætkartöflusúpa

Súpur geta verið auðveld leið til að auka grænmetisneyslu barna og fullorðinna á einfaldan og þægilegan hátt en þeirra stærsti kostur er oft hversu þægilegt er að matreiða þær. Þessa silkimjúku og ljúffengu súpu er t.a.m. einstaklega þægilegt að gera eftir langan vinnudag þar sem undirbúningstími er sáralítill og hráefnin sjá bara um sig sjálf … Continue reading →

20141229_191104_2

Heitt brauðsalat

„Eitthvað ofan á brauð“ er orðasamband sem hlaut alveg nýja merkingu í mínu lífi eftir að ég henti saman þessari uppskrift. Ég hafði keypt mér svo ilmandi og mjúkt súrdeigsbrauð sem mig langaði að gera eitthvað spennandi við en steingleymdi alveg að kaupa eitthvað til að föndra álegg úr. Því voru góð ráð dýr og … Continue reading →

Page 1 of 41234