Ég hef mjög oft verið spurð að því hvað ég borði á jólunum og lengi vel átti ég ekkert svar á reiðum höndum. Sannleikurinn er sá að ég hef oft búið mér til eitthvað úr því sem er til í ísskápnum á aðfanga- og jóladag, alveg laus við hið hátíðlega matarstress. Stundum hef ég haft … Continue reading →
Ég er lítið fyrir hefðbundnar pizzur en er þeim mun spenntari fyrir óhefðbundnari útgáfum. Sennilega hef ég aldrei gert sömu pizzuna tvisvar en botninn er alltaf eins og er algjört æði. Stökkur, þunnur og passlega bragðmikill til að bera uppi spennandi bragðtegundir en nógu hlutlaus til að næstum því hvað sem er passar vel með … Continue reading →
Þegar lífið gefur mér lífræna tómata þá bý ég til dásamlega sumarsúpu! Þessi varð nú samt eiginlega til fyrir algjöra slysni hjá mér. Ég hafði farið í búð og eins – og ég hef tilhneigingu til að gera – kom ég heim með ógrynnin öll af girnilegum og freistandi hráefnum. Ég stóð uppi með fullt eldhús … Continue reading →
Þessi bragðgóði drykkur kemur alltaf freyðandi og ískaldur úr blandaranum og ég hressist öll við bara að horfa á hann streyma í glasið mitt því ég veit hvað er í vændum! Í hvert sinn sem ég er þreytt seinnipartinn eða finnst athyglisgáfan ekki vera upp á sitt besta finnst mér æðislegt að fá mér svona ískaldan … Continue reading →
Ég elska gott meðlæti og stundum er meðlætið hreinlega stærsti hluti disksins hjá mér. Það á sérstaklega við um ferskt grænmeti og annað góðgæti sem byggir undir næringarríka og fjölbreytta máltíð. Eitt af mínu allra uppáhalds er guacamole en salsa finnst mér líka gefa máltíðum einstakan ferskleika svo ég nota það einnig við hin ýmsu … Continue reading →