Jólamaturinn 2015

Gleðilegan jólaundirbúning! Hér finnurðu innkaupalista yfir allt sem til þarf í þriggja rétta jólamálsverð Hugmynda að hollustu:

  • hnetusteikBakað hummus með súrsætum perum og sólþurrkaðri tómatasósu 
  • Hnetusteik með sætkartöflumús, sérrýsteiktum sveppum og trönuberjasósu 
  • Súkkulaðiganache með heslihnetumauki og ferskum berjum

Til að létta þér lífið er ég líka með myndir af þeim vörum sem gætu verið nýjar fyrir þér ásamt útskýringum á því hvað þær gera eða hvers vegna ég mæli með þeim.

Uppskriftirnar birtust í Jólablaði Fréttablaðsins þriðjudaginn 24. nóvember og verða einnig aðgengilegar hér á vefnum áður en langt um líður. Allar þrjár uppskriftirnar eru fyrir fjóra einstaklinga og eru bæði vegan og glútenlausar. Þær eru einnig að mestu sykurlausar en í forréttinum er um hálf matskeið af sykri á mann og einhver sykur fylgir sérrýinu sem sveppirnir eru steiktir upp úr. Ég mæli með því að þú prófir hnetusteikina með öllu meðlætinu því saman myndar þetta eina dásamlega heild af mismunandi bragðeiginleikum. Ef þú ætlar bara að elda hnetusteikina en ekki for- og/eða eftirrétt gæti borgað sig að stækka uppskriftina aðeins.

Hér neðst á síðunni er svo að finna tengla á enn fleiri jólalegar uppskriftir sem allar eru vegan og sykurlausar auk þess sem margar þeirra eru einnig glútenlausar.

Öll hráefnin fást í verslunum Nettó að undanskildu sérrýinu svo það ætti að vera auðvelt að klára öll innkaupin í einni ferð. Ég minni svo á að á aðfangadag sendi ég alla matargerðina út á Snapchat undir notandanafninu hollusta svo fylgstu með ef þú vilt sjá hvernig ég ber mig að!

Ávextir & grænmeti:

  • 1 stk Engiferrót
  • 1 Hvítlaukur
  •  Lime
  • 2 Perur
  • 6 Skalottlaukar
  • 1 Box af sveppum
  • 800 gr Sætar kartöflur
  • Fersk hindber og bláber

Ég nota alltaf lífrænt grænmeti og ávexti frá Fairtrasa þegar sá valkostur er í boði. Ég hef sérstaklega tekið eftir því að lífræna engiferrótin og hvítlaukurinn eru bragðsterkari frá Fairtrasa en öðrum svo það má e.t.v. auka magnið af þeim örlítið ef þú notar „ólífrænt“. Athugaðu líka að lífrænar perur eru almennt minni en aðrar svo leitaðu að minnstu stykkjunum ef þú kaupir „ólífrænar“.

Krydd:

  • Allrahanda krydd
  • Cayenne pipar
  • Kanill
  • Múskat, rifið eða heilt
  • Reykt paprikukrydd
  • Þurrkað timian
  • Hreint vanilluduft
  • Rapunzel grænmetisteningar

Allrahanda, cayenne, reykt paprikukrydd og þurrkað timian færðu í hefðbundnu kryddhillunum. Allrahanda gæti líka leynst í bökunardeildinni. Hreina vanilluduftið og Rapunzel grænmetisteningana finnurðu hins vegar í heilsuhillunum og ég mæli líka alltaf með því að nota lífrænan ceylon kanil frá Himneskri hollustu sem er einnig í heilsudeildinni.

Hnetur, fræ & ber:

  • Rainforest Foods Chiafræ
  • 1 poki Horizon trönuber
  • 100 gr Valhnetukjarnar
  • 100 gr Pecan hnetur

Chia fræin og trönuberin færðu í heilsuhillunum ásamt pecan- og valhnetum ef þú kýst að kaupa þær lífrænar.

Önnur þurrvara:

  • 1 krukka Kjúklingabaunir frá Himneskri hollustu
  • 2 dósir änglamark kókosmjólk
  • Monki heslihnetumauk (eða heslihnetu- og möndlumauk)
  • Cocofina kókossykur, fljótandi eða þurr
  • 1 ferna Isola Sykurlaus möndlumjólk
  • Ristuð graskersfræ frá Rapunzel
  • 1 Balance súkkulaði með kakónibbum
  • Tahini frá Monki
  • Tamari sósa frá Clearspring
  • Rauðvínsedik
  • 1 krukka Coop sólþurrkaðir tómatar
  • Mangóchutney

Þú finnur alla þurrvöruna í heilsudeildinni nema rauðvínsedik, mangóchutney og sólþurrkuðu tómatana en kókosmjólkina má yfirleitt líka finna hjá asísku matvörunum.

Vín:

  • Bristol Cream Sérrý

 

Nánar um vörurnar:

Tahini

tahiniTahini er hreint mauk úr sesamfræjum sem er einna mest notað í hummus en er einnig frábært í sósur og aðra matargerð auk þess sem hægt er að baka dýrindis smákökur úr því fyrir jólin!
Ég mæli sérstaklega með Monki tahini þar sem það er mjög ólíkt öðru tahini sem ég hef prófað. Það er mjög sætt miðað við beiskt bragð flestra annarra tegunda, og því getur útkoman orðið töluvert ólík ef önnur tahini tegund er notuð. Ef þú vilt nýta annað tahini sem þú átt nú þegar gæti borgað sig að blanda því til helminga við hreint hnetusmjör til að nálgast Monki tahini bragðið. Kíktu svo á uppskriftina mína að nærandi, ilmandi smákökum með pecan og súkkulaði og skelltu í eina svoleiðis uppskrift á aðventunni!

Kjúklingabaunir
4Það er ekki svo mikill munur á kjúklingabaunum milli tegunda en ástæðan fyrir því að ég nota Himneska hollustu er í fyrsta lagi sú að þær eru í glerkrukku og hafa því ekki komist í snertingu við málminn í niðursuðudós sem getur verið af misjöfnum gæðum. Í öðru lagi er skammturinn akkúrat passlegur fyrir forréttauppskriftina, en kíktu á magnið ef þú notar kjúklingabaunir frá öðrum framleiðanda. Úr krukku frá Himneskri hollustu færðu u.þ.b. 220 grömm af kjúklingabaunum án vökva.

 

Chia fræ
12Þessi örsmáu ofurfræ hafa lykilhlutverki að gegna við að binda og þétta hnetusteikina, en þegar þau komast í snertingu við vökva gefa þau frá sér klístrað gel sem virkar á svipaðan hátt og egg. Án þeirra fengjum við ekkert nema pottrétt út úr þessu öllu saman. Ég nota chia fræ frá Rainforest Foods sem eru bæði lífræn og sanngirnisvottuð og hafa alltaf reynst mér vel í matargerð. Það getur verið mismunandi á milli tegunda hversu mikla bindingu fræin gefa en Rainforest Foods fræin hafa alltaf reynst mér vel. Af þessum sökum er mikilvægt að láta hnetusteikurdeigið standa í góða stund áður en það er sett í ofninn því þá er tækifæri til að bæta fræjum út í ef það er enn of fljótandi.
Þegar þú ert ekki að búa til jólamat úr chia fræjum er upplagt að skella einni og einni skeið út í morgungrautinn eða þeytinginn, búa til chiagraut eða nýta sem staðgengil fyrir egg í bakstur!

Grænmetiskraftur
13Grænmetisteningarnir frá Rapunzel eru lykilhráefni í mörgum uppskriftum hjá mér en þeir hafa eitthvert einstakt bragð sem ég hef ekki fundið í öðrum tegundum.
Ég mæli eindregið með því að nota þessa tegund grænmetisteninga í uppskriftirnar mínar þar sem útkoman verður alls ekki sú sama með öðrum.

 

Kanill
3Ef þú átt nú þegar til dós af kanil þá er upplagt að klára hana og nýta í jólauppskriftirnar. Ef þig vantar hins vegar nýja dós þá ráðlegg ég þér að prófa Ceylon kanillinn frá Himneskri hollustu. Hann er af hæstu gæðum og af sértakri tegund kanils sem er mun heilnæmari en sá hefðbundni. Að mínu mati er einn af stóru kostunum sá að eftirbragðið er allt öðruvísi og hann blandast öðru kryddbragði betur án þess að yfirgnæfa það.

 

Kókosmjólk
9Lífræna kókosmjólkin frá änglamark er eina tegundin sem ég kaupi. Hún er einstaklega þykk og ljúffeng en hún er líka eina kókosmjólkurtegundin sem ég get alltaf treyst á í rjómaþeytingar og eftirrétti. Þegar hún hefur verið geymd í ísskáp í sólarhring er hægt að skafa á milli ½ – ¾ af þykkum kókosrjóma ofan af vökvanum í dósinni og annað hvort þeyta einan sér til að bera fram með kökum eða til notkunar í eftirrétti eins og þann sem er á jólamatseðlinum. Margar aðrar tegundir eru af háum gæðum og ljúffengar á bragðið en änglamark dósirnar eru þær einu sem aldrei hafa brugðist mér í rjómagerðinni. Ég á alltaf nokkrar dósir í kæli, tilbúnar í þau matargerðarævintýri sem mér dettur í hug.

 

Heslihnetumauk
1Aftur mæli ég með Monki framleiðandanum sem gerir dýrindis lífræn hnetu- og fræmauk. Hver dós inniheldur hrein og nærandi hráefni og bragðið kemur tært í gegn. Í eftirréttinn má nota hvort sem er hreint heslihnetumauk eða heslihnetu- og möndlu. Eftir jólin má svo dýfa eplabátum í þessa dásemd!

 

 

Kókossykur
14Ástæðan fyrir því að ég nota kókossykur í stað hrá- eða hvíts sykurs er sú að samanburðurinn er einfaldlega sláandi. Á meðan hefðbundinn sykur er mjög næringarsnauður og hefur mikil áhrif á blóðsykurinn má finna ýmiss konar steinefni í kókossykrinum og hann hefur töluvert minni áhrif á blóðsykurinn. Sykurstuðull hreins sykurs er 100 en sykurstuðull kókossykurs er aðeins 35. Til samanburðar er hunang í kringum 50.
Bragðið af kókossykri er einnig öðruvísi, það er dýpra og örlítið karamellukennt en það má bæði fá í fljótandi og þurrkuðu formi.

 

Möndlumjólk
17Ég nota möndlumjólk á hverjum degi í þeytinga, grauta, bakstur eða matargerð. Það skiptir mig því miklu máli að möndlumjólkin mín sé af sem mestum gæðum og laus við allan óþarfa. Þessi er ekki aðeins fullkomlega laus við allan sykur og önnur aukaefni heldur er hún líka sú allra besta sem ég hef smakkað og inniheldur óvenju hátt hlutfall mandla í vökvanum.
Þegar ég nota hana í matargerð líkt og í sætu kartöflumúsinni þykknar hún líka svo fallega og verður hreinlega að ljúffengum möndlurjóma.

 

Ristuð graskersfræ

GraskersfræRistuðu graskersfræin frá Rapunzel eru ljúffeng á salöt, súpur og út á næstum því hvaða rétt sem er en mér finnst alveg einstaklega þægilegt að nota þau í forréttaruppskriftina þar sem það sparar mér vinnuna við að rista sjálf.
Ef þú átt hins vegar óristuð graskersfræ er upplagt að nýta þau og láta þau dökkna á vel heitri pönnu í nokkrar mínútur, en halda þeim á góðri hreyfingu allan tímann og kæla þau svo áður en þau eru möluð.

 

Sólþurrkaðir tómatar
10Það er ótrúlega þægilegt að geta keypt sólþurrkaða tómata sem búið er að saxa niður og þess vegna á ég alltaf til krukku af Coop söxuðum tómötum.
Ég tek úr krukkunni það magn sem ég þarf að nota í hvert sinn, skola olíuna af eftir fremsta megni og bæti svo út í uppskriftina.

 

Mangóchutney

11Mangóchutney er yfirleitt engin heilsuvara og ég mæli ekki með óhóflegri notkun þess en Milda’s maukið er það sem ég nota í bakaða hummusinn. Það inniheldur sykur en er laust við önnur aukaefni og mér finnst það gefa þá dýpt og hæfilegu sætu sem hummusið vantar til að tóna við reyktu paprikuna.

Ég hef ekki prófað aðrar tegundir í uppskriftina en sumt mangóchutney er mjög kryddað og það er ekki víst að slíkar blöndur passi eins vel og þetta gerir.

 

Balance sykurlaust súkkulaði
SúkkulaðiÞar sem jólin eru oft ansi sykruð finnst mér góð hugmynd að nota sykurlaust súkkulaði í eftirréttinn á aðfangadag til að draga í það minnsta úr sykurmagninu yfir hátíðarnar.
Bragðið af Balance súkkulaði með kakónibbum smellpassar alveg í eftirréttinn en það má auðvitað nota aðrar tegundir.
Ég mæli þó alltaf með því að notað sé dökkt súkkulaði í þennan rétt svo hann verði ekki of væminn, en ég hef notað allt að 90% dökkt lífrænt súkkulaði í súkkulaði ganache áður með góðum árangri! (það er þó e.t.v. ekki fyrir byrjendur í dökka súkkulaðifaginu!).

 

Tamari sósa
18Munurinn á tamari- og sojasósu er sá að í þá fyrrnefndu er ekki notað hveiti. Hún hentar þ.a.l. fyrir þá sem eru með glútenóþol- eða ofnæmi og fyrir þá sem sneiða hjá hveiti. Ég nota hana líka frekar en soja þar sem hún er hreinni afurð og ég vil eingöngu lífræna til að tryggja að sojabaunirnar sem notaðar voru hafi verið óerfðabreyttar.
Ódýrar soja- og tamarisósur eru líka oft útþynntar og fullar af aukaefnum sem gefa annað bragð og eru af allt öðrum gæðaflokki. Lífræna Clearspring tamarisósan finnst mér þ.a.l. vera frábær valkostur í alla matargerð.

 


Vanilluduft

8Þessi pínulitla glerkrukka inniheldur tandurhreina lífræna vanillu og er eitt af algjörlega ómissandi hráefnum í mínu eldhúsi. Þó skammturinn sé smár dugar hann í langan tíma þar sem lítið þarf af þessu hráefni í hvert sinn.
Það er einfaldlega ekkert sem kemur í staðinn fyrir hreina vanillu, hvorki vanilludropar né –extrakt, en þó má að sjálfsögðu nota heila vanillustöng og skafa úr henni kornin, sem eru akkúrat þau sömu og búið er að koma fyrir í þessum handhægu umbúðum.

 

Hneturnar og trönuberin

Ég nota trönuber frá Horizon af þeirri ástæðu að þau eru ekki bara lífræn heldur einnig án aukaefna og sykurs. Ef þú vilt nota aðra tegund lestu þá innihaldslýsinguna og gáðu hvort þau séu mikið sykruð en reyndu að velja þann valkost sem er minnst sætur. Trönuberjasósan á að vera með súrsætum keim til að vega upp á móti sætunni í sætkartöflumúsinni og sveppunum og þannig myndast ljúffengt jafnvægi í öllu meðlætinu.
Pecan- og valhneturnar sem ég nota eru einnig frá Horizon, einfaldlega vegna þess að ég treysti þeim framleiðanda til að færa mér hágæða hráefni í hverjum poka. Ég hef stundum freistast til að nota ódýrari tegundir hneta í matargerð en mér finnst þær ekki eins bragðgóðar og kaupi núna eingöngu lífrænu Horizon hneturnar mínar.
21

 

Ég vona að þessi ítarlegi innkaupalisti hafi hjálpað þér að finna allt sem þú þarft í jólamatinn og að matargerðin muni ganga vel. Mundu eftir að bæta mér við á Snapchat ef þú vilt fylgjast með því sem gerist í mínu eldhúsi á aðfangadag – notandanafnið er hollusta.

snaphah

 

Kíktu á fleiri jólalegar uppskriftir!

Nærandi og ljúffeng sveppasúpa sem hægt er að breyta í sveppasósu!
Tahini smákökur með pecan og súkkulaði
Heilnæmar og hátíðlegar sörur
Hollari Ris a la mande
Afrísk hnetusteik með mangósalsa
Súkkulaði ganache kaka með karamellusósu
Súkkulaði- og bananasnittur

Ananasfrómas-þeytingur
Kínóagrautur með bláberjamöndlurjóma
Sparisúkkulaði

Njóttu aðventunnar og gleðilega hátíð!