Kínóa er ótrúlegt hráefni sem sniðugt er að eiga tilbúið í ísskáp og nota við hin ýmsu tilefni. Það er frábært í grauta sem þennan en svo er hægt að sjóða það til notkunar líkt og hrísgrjón, gera úr því buff og bollur, hræra saman við súpur og grauta eða jafnvel bæta soðnu kínóa í … Continue reading →
Uppáhalds líkamsræktin mín eru langir Hot yoga tímar sem reyna á styrk og einbeitingu, auka liðleika og fá mig til að virkja alla mögulega vöðva líkamans. Eftir slíka áreynslu get ég næstum því heyrt vöðva og liðamót mala af ánægju og léttleika! Það krefst áframhaldandi einbeitingar að passa upp á að vöðvarnir herpist ekki upp í … Continue reading →
Þessi bragðgóði drykkur kemur alltaf freyðandi og ískaldur úr blandaranum og ég hressist öll við bara að horfa á hann streyma í glasið mitt því ég veit hvað er í vændum! Í hvert sinn sem ég er þreytt seinnipartinn eða finnst athyglisgáfan ekki vera upp á sitt besta finnst mér æðislegt að fá mér svona ískaldan … Continue reading →
Þó ég sé eldheitur stuðningsmaður hreinna og uppbyggjandi salatmáltíða skal ég vera fyrst til að viðurkenna að máltíðin sjálf getur verið þolinmæðisverk. Þess vegna kýs ég oft að flýta fyrir mér með því að pakka salatinu saman í tortillur, nori blöð eða hrísgrjónapappír. Síðastnefndi kosturinn er í sérstöku uppáhaldi hjá mér því hrísgrjónapappír er alveg bragðlaus … Continue reading →
Vítamínvatn og aðrir framleiddir drykkir eiga ekki séns í þetta krútt! Það eina sem þarf að gera er að setja litla handfylli af frosnum bláberjum í flösku eða glas. Bæta við einu bréfi af Clipper lakkríste og fylla svo með köldu vatni. Láttu standa í fimm mínútur og þá er kominn þessi ískalda, frískandi, nærandi og andoxandi … Continue reading →
Stundum þegar ég er í stuði á kvöldin hendi ég saman dásamlegum graut sem fær að malla sig sjálfur inni í ísskáp yfir nóttina.Útkoman er undantekningarlaust ljúffeng og það er engin uppskrift. Galdurinn er að nota grófasta haframjöl sem þið komið höndum yfir, setja það í skál ásamt vökva að eigin vali í hlutföllunum 1:2 … Continue reading →