Þessi réttur er svolítill lúxusmatur því hann er í fyrsta lagi alveg dásamlega bragðgóður en í hann nota ég líka nokkur hráefni sem eru í dýrari kantinum. Ég mæli með þessum fyrir notalegan dinner um helgi, í góðum félagsskap þegar þú hefur góðan tíma til að njóta. Matargerðin er hins vegar einföld og fljótleg! Aðalhráefnið … Continue reading →
Þessi dásamlega súpa er ein af allra fyrstu uppskriftunum sem ég þróaði sjálf en hef aldrei áður birt. Það var fyrir um 15 árum sem ég hætti að kaupa pakkasúpur og vildi fara að auka bæði ferskleika og hollustu sem mér tókst að gera þessa skotheldu uppskrift sem fellur alltaf vel í kramið. Hún er bæði … Continue reading →
Súpur geta verið auðveld leið til að auka grænmetisneyslu barna og fullorðinna á einfaldan og þægilegan hátt en þeirra stærsti kostur er oft hversu þægilegt er að matreiða þær. Þessa silkimjúku og ljúffengu súpu er t.a.m. einstaklega þægilegt að gera eftir langan vinnudag þar sem undirbúningstími er sáralítill og hráefnin sjá bara um sig sjálf … Continue reading →
Kínóa er ótrúlegt hráefni sem sniðugt er að eiga tilbúið í ísskáp og nota við hin ýmsu tilefni. Það er frábært í grauta sem þennan en svo er hægt að sjóða það til notkunar líkt og hrísgrjón, gera úr því buff og bollur, hræra saman við súpur og grauta eða jafnvel bæta soðnu kínóa í … Continue reading →
Ef þú elskar kaldar sósur og getur illa ímyndað þér lífið án t.d. pítusósu þá er þessi svo sannarlega spennandi fyrir þig. Mér finnst hún passa frábærlega með næstum því hvaða mat sem er og hún er svo næringarrík að það er í góðu lagi að nota hana í ríflegum skömmtum eins oft og óskað er. … Continue reading →
Ég er lítið fyrir hefðbundnar pizzur en er þeim mun spenntari fyrir óhefðbundnari útgáfum. Sennilega hef ég aldrei gert sömu pizzuna tvisvar en botninn er alltaf eins og er algjört æði. Stökkur, þunnur og passlega bragðmikill til að bera uppi spennandi bragðtegundir en nógu hlutlaus til að næstum því hvað sem er passar vel með … Continue reading →