kínóakókos

Kókos- og kínóa súkkulaðidraumur

Kínóa er eitt uppáhalds hráefnið mitt vegna þess hversu fjölbreyttir notkunarmöguleikarnir eru, bragðið ljúffengt og næringargildið hátt. Kínóa er mjög próteinríkt og inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar auk þess að færa líkamanum fjöldan allan af vítamínum, steinefnum og plöntunæringarefnum (e. phytochemicals). Ég nota heilt kínóa t.d. sem grunn í máltíðir eða salöt, sem meðlæti og í … Continue reading →

20141229_191104_2

Heitt brauðsalat

„Eitthvað ofan á brauð“ er orðasamband sem hlaut alveg nýja merkingu í mínu lífi eftir að ég henti saman þessari uppskrift. Ég hafði keypt mér svo ilmandi og mjúkt súrdeigsbrauð sem mig langaði að gera eitthvað spennandi við en steingleymdi alveg að kaupa eitthvað til að föndra álegg úr. Því voru góð ráð dýr og … Continue reading →

múslí

Ósætar múslíkúlur

Það er stöðug áskorun að útbúa heilnæma valkosti fyrir sætindagrísi, stóra sem smáa. Það getur verið gott að eiga eitthvað til að grípa úr frystinum þegar nartið tekur öll völd eða þegar gestir birtast skyndilega, og svo er það hinn ævarandi hausverkur margra foreldra að geta boðið börnum sínum upp á eitthvað hollt og uppbyggjandi … Continue reading →

eplamix

Epli í góðum félagsskap

Það þarf ótrúlega lítið til að gera einfaldan ávöxt að spennandi viðburði fyrir bragðlaukana. Kvöldsnarlið mitt að þessu sinni var samansett af niðurskornum lífrænum eplum, flysjaðri peru, nokkrum trönuberjum, grófsaxaðri myntu og örlítilli gusu af hampfræjum. Möguleikarnir eru endalausir og fyrir utan hversu margar ávaxtategundir er hægt að nota má setja út á hvers konar … Continue reading →

spírubrauð

Ó, dásamlega spírubrauð!

Ég er nýbúin að uppgötva spírubrauð og elska þau svo fast að ég gæti sprungið úr gleði! Þau eru ótrúlega ljúffeng, innihalda engin aukaefni eða óþarfa hráefni og eru stútfull af auðmeltri næringu. Brauðið sem sést á þessari mynd inniheldur einungis tvö hráefni: Spíruð heil hveitikorn og rúsínur. Ekkert annað! Þegar hveitikornið er spírað hækkar próteinhlutfall … Continue reading →

döðluplóma

Dýrðlega döðluplóma

Ef þú hefur ekki þegar smakkað þennan æðislega ávöxt þá skaltu festa kaup á einu stykki næst þegar þú rekst á hann. Á íslensku heitir þetta Döðluplóma en er oft kallað Persimmon eða Kaki á erlendri tungu og á skiltum matvöruverslana. Bragðið er bókstaflega ólýsanlegt. Þetta er eins og afkvæmi melónu og plómu og döðlu…en bara margfalt betra … Continue reading →

Page 1 of 212