Þegar tvö ár voru liðin frá því ég opnaði Facebook síðuna Hugmyndir að hollustu langaði mig að gera eitthvað öðruvísi í tilefni áfangans. Úr varð að ég tilkynnti um viðburð á Snapchat – óvissubakstur þar sem þátttakendur fengju aðgang að hráefnalista og svo kæmi ekki í ljós hvað yrði úr honum fyrr en í beinni … Continue reading →
Kínóa er eitt uppáhalds hráefnið mitt vegna þess hversu fjölbreyttir notkunarmöguleikarnir eru, bragðið ljúffengt og næringargildið hátt. Kínóa er mjög próteinríkt og inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar auk þess að færa líkamanum fjöldan allan af vítamínum, steinefnum og plöntunæringarefnum (e. phytochemicals). Ég nota heilt kínóa t.d. sem grunn í máltíðir eða salöt, sem meðlæti og í … Continue reading →
Ein sú skemmtilegasta áskorun sem ég hef tekist á hendur er sú að setja saman ljúffengar og hátíðlegar uppskriftir sem gætu fengið hvern sem er til að gleyma óhollustu og sykursukki sem oft tilheyrir aðventu og jólum. Mér þykir heldur ekkert verra þegar ég næ þeim árangri án þess að það kosti mikla fyrirhöfn. Þessar fallegu … Continue reading →
Ég hef ekki smakkað hefðbundnar sörur í hátt í áratug og hef lítið saknað þeirra. Undanfarið hef ég hins vegar séð mikla sörustemmingu í kringum mig og ákvað að láta reyna á það hvort mér tækist að gera ljúffengar sörur úr heilnæmum hráefnum sem væru jafnframt án eggja, mjólkur og glútens. Útkoman er dásamleg og … Continue reading →