Þessi réttur er svolítill lúxusmatur því hann er í fyrsta lagi alveg dásamlega bragðgóður en í hann nota ég líka nokkur hráefni sem eru í dýrari kantinum. Ég mæli með þessum fyrir notalegan dinner um helgi, í góðum félagsskap þegar þú hefur góðan tíma til að njóta. Matargerðin er hins vegar einföld og fljótleg! Aðalhráefnið … Continue reading →
Það er eitthvað við sérbakaða matarskammta sem kitlar mig í hjartað og mér finnst ótrúlega gaman að gera fallega framsettar máltíðir úr einföldum hráefnum. Það er ekki flækjustigið eða langir hráefnalistar sem skapa góðar máltíðir heldur gæðin og samsetningin. Þessi réttur er upplagður kvöldverður á dimmum, köldum mánudegi og fellur vel í kramið hjá bæði … Continue reading →
Ég er lítið fyrir hefðbundnar pizzur en er þeim mun spenntari fyrir óhefðbundnari útgáfum. Sennilega hef ég aldrei gert sömu pizzuna tvisvar en botninn er alltaf eins og er algjört æði. Stökkur, þunnur og passlega bragðmikill til að bera uppi spennandi bragðtegundir en nógu hlutlaus til að næstum því hvað sem er passar vel með … Continue reading →
Fólk hefur skiptar skoðanir um bragðgæði eggaldins, enda er hægt að elda bæði vondan mat og svo afar ljúffengan úr þessu skemmtilega hráefni. Þegar vel tekst til er þetta eitt ljúffengasta hráefni sem náttúran býður upp á og áferðin er alveg undursamleg. Ég hef mikinn áhuga á því að stuðla að upprisu eggaldins sem lúxushráefnis … Continue reading →