Ég er undanfarið búin að gera tilraunir með bygg og möndlumjólk í þeim tilgangi að búa til stórfenglega ljúffengan og næringarríkan morgungraut. Þessi blanda hefur svo sannarlega ekki valdið vonbrigðum og passar vel með hinum ýmsu ávöxtum og hnetum. Þegar ég var að sjóða byggið mitt í dag tók hins vegar eftirréttasælkerinn völdin og ég … Continue reading →
Þó ég sé eldheitur stuðningsmaður hreinna og uppbyggjandi salatmáltíða skal ég vera fyrst til að viðurkenna að máltíðin sjálf getur verið þolinmæðisverk. Þess vegna kýs ég oft að flýta fyrir mér með því að pakka salatinu saman í tortillur, nori blöð eða hrísgrjónapappír. Síðastnefndi kosturinn er í sérstöku uppáhaldi hjá mér því hrísgrjónapappír er alveg bragðlaus … Continue reading →
Bollur eru ómissandi í lífi hvers Íslendings þessa dagana en ekki hafa allir kost á að borða þessar hefðbundnu sem fást í öllum bakaríum og verslunum. Ég hef sjálf ekki borðað egg eða mjólkurvörur í tæp tvö ár og í einu skiptin sem mér finnst ég virkilega fara á mis við eitthvað er þessa örfáa … Continue reading →