Ég hef tekið eftir því að það er vinsælt að velta vöngum yfir því hvernig skuli nýta aldraða banana. Jafnframt hef ég orðið vör við það að hið staðlaða svar við þeim heilabrotum er „bakaðu bananabrauð!“. Svo komst ég að því að ein eftirsóttasta uppskrift internetsins alls er einmitt bananabrauð! Það er eitt af allra … Continue reading →
Þegar tvö ár voru liðin frá því ég opnaði Facebook síðuna Hugmyndir að hollustu langaði mig að gera eitthvað öðruvísi í tilefni áfangans. Úr varð að ég tilkynnti um viðburð á Snapchat – óvissubakstur þar sem þátttakendur fengju aðgang að hráefnalista og svo kæmi ekki í ljós hvað yrði úr honum fyrr en í beinni … Continue reading →
Hefðir þú getað trúað því jólagrauturinn klassíski (en dálítið syndsamlegi), ris a la mande, gæti verið stútfullur af næringu og hollustu án þess að fórna nokkru af bragðgæðunum? Ég þróaði alveg dásamlega uppskrift (þó ég segi sjálf frá) sem birtist í jólablaði Nettó 2013. Hann fékk frábæra dóma þá og ég er búin að fá … Continue reading →
Þegar lífið gefur mér lífræna tómata þá bý ég til dásamlega sumarsúpu! Þessi varð nú samt eiginlega til fyrir algjöra slysni hjá mér. Ég hafði farið í búð og eins – og ég hef tilhneigingu til að gera – kom ég heim með ógrynnin öll af girnilegum og freistandi hráefnum. Ég stóð uppi með fullt eldhús … Continue reading →
Bæði pastaréttir og rjómasósur hafa á sér slæmt orð um þessar mundir, en það eru til margar heilnæmar og ljúffengar útgáfur af hvoru tveggja. Einstöku sinnum finnst mér gott að fá mér rjómakenndan pastarétt, en slæ þó hvergi af kröfum um næringu eða bragðgæði. Til er margs konar pasta og ég kaupi aldrei annað en … Continue reading →