Sumarsúpa fyrir allar árstíðir

Sumarsúpa fyrir allar árstíðir

Þegar lífið gefur mér lífræna tómata þá bý ég til dásamlega sumarsúpu! Þessi varð nú samt eiginlega til fyrir algjöra slysni hjá mér. Ég hafði farið í búð og eins – og ég hef tilhneigingu til að gera – kom ég heim með ógrynnin öll af girnilegum og freistandi hráefnum. Ég stóð uppi með fullt eldhús af ýmiss konar grænmeti en ekkert plan. Tómatarnir kölluðu hvað hæst á mig svo ég ákvað að búa til fljótlega súpu sem innihéldi sem fjölbreyttasta næringu og væri bæði seðjandi og gleðjandi fyrir maga og bragðlauka. Eftir hugarflug og netleit ákvað ég að gera þetta svona og það var tahini sem færði súpuna alveg upp á nýjan stall ásamt reykta paprikukryddinu og sólþurrkuðu tómötunum.

 Þessi hráa grænmetissúpa er afskaplega ljúffeng, einföld og fljótgerð en ef þér líst illa á tilhugsunina um óhitaða súpu þá er bara um að gera að breyta henni í rjúkandi heita tómatsúpu með góðu brauði og avocadosneiðum. Þannig breytist sumarsúpan auðveldlega í fínustu vetrarsúpu!

Hráefni

  • 800 gr tómatar
  • 6 sólþurrkaðir tómatar
  • 2 rauðar paprikur
  • 3 gulrætur
  • 1/2 sellerístilkur
  • 4 mjúkar döðlur
  • 2 hvítlauksrif
  • 6 msk tahini
  • Safi úr einu lime
  • 1 tsk reykt paprikukrydd
  • 1/2 tsk chiliflögur
  • Salt eftir smekk
  • Pipar eftir smekk

Leiðbeiningar

  1. Aðferðin gæti ekki verið einfaldari – allt sett í blandara og hann látinn ganga þar til þetta er orðið að freyðandi, mjúkri súpu.
  2. Hægt er að borða súpuna kalda eða volga beint úr blandaranum eða hita hana upp í potti og bera fram heita.

Þessi skammtur er rúmlega 1,5 lítrar og ef það er afgangur má geyma hann í ísskáp og njóta seinna, eða nýta t.d. sem sósu á hrísgrjón, kínóa eða pasta.