Chia grautar eru einstaklega vinsælir um þessar mundir, ýmist sem morgunmatur, eftirréttur eða millimál. Þessi skemmtilegu fræ eru auðvitað einstaklega næringarrík og hafa þann eiginleika að þenjast út og gefa frá sér þykkan vökva sem breytir vökva í hálfgerðan búðing. Margir bæta þeim t.d. í þeytinga eða hræra út í hræragraut á hverjum degi til að … Continue reading →
Kínóa er ótrúlegt hráefni sem sniðugt er að eiga tilbúið í ísskáp og nota við hin ýmsu tilefni. Það er frábært í grauta sem þennan en svo er hægt að sjóða það til notkunar líkt og hrísgrjón, gera úr því buff og bollur, hræra saman við súpur og grauta eða jafnvel bæta soðnu kínóa í … Continue reading →
Ég er undanfarið búin að gera tilraunir með bygg og möndlumjólk í þeim tilgangi að búa til stórfenglega ljúffengan og næringarríkan morgungraut. Þessi blanda hefur svo sannarlega ekki valdið vonbrigðum og passar vel með hinum ýmsu ávöxtum og hnetum. Þegar ég var að sjóða byggið mitt í dag tók hins vegar eftirréttasælkerinn völdin og ég … Continue reading →
Bollur eru ómissandi í lífi hvers Íslendings þessa dagana en ekki hafa allir kost á að borða þessar hefðbundnu sem fást í öllum bakaríum og verslunum. Ég hef sjálf ekki borðað egg eða mjólkurvörur í tæp tvö ár og í einu skiptin sem mér finnst ég virkilega fara á mis við eitthvað er þessa örfáa … Continue reading →
Ég elska gott meðlæti og stundum er meðlætið hreinlega stærsti hluti disksins hjá mér. Það á sérstaklega við um ferskt grænmeti og annað góðgæti sem byggir undir næringarríka og fjölbreytta máltíð. Eitt af mínu allra uppáhalds er guacamole en salsa finnst mér líka gefa máltíðum einstakan ferskleika svo ég nota það einnig við hin ýmsu … Continue reading →