pizzabaka

Næringarrík og seðjandi pizzabaka

Það er eitthvað við sérbakaða matarskammta sem kitlar mig í hjartað og mér finnst ótrúlega gaman að gera fallega framsettar máltíðir úr einföldum hráefnum. Það er ekki flækjustigið eða langir hráefnalistar sem skapa góðar máltíðir heldur gæðin og samsetningin. Þessi réttur er upplagður kvöldverður á dimmum, köldum mánudegi og fellur vel í kramið hjá bæði … Continue reading →

múffur

Appelsínu- og trönuberjamúffur með kókoskeimi

Ég verð sífellt fráhverfari sætum kökum og hefðbundnu góðgæti svo ég baka afskaplega sjaldan. Hins vegar rak ég augun í alveg hreint ómótstæðilega uppskrift sem mig langaði að prófa – en ekki fyrr en ég hafði úthugsað hvernig ég gæti lagað hana enn frekar að mínum einfalda smekk. Ég reyni alltaf að hafa sem flest innihaldsefni næringarrík … Continue reading →