múslí

Ósætar múslíkúlur

Það er stöðug áskorun að útbúa heilnæma valkosti fyrir sætindagrísi, stóra sem smáa. Það getur verið gott að eiga eitthvað til að grípa úr frystinum þegar nartið tekur öll völd eða þegar gestir birtast skyndilega, og svo er það hinn ævarandi hausverkur margra foreldra að geta boðið börnum sínum upp á eitthvað hollt og uppbyggjandi … Continue reading →

grænt te

Grænt morgunte

Þeir dagar sem ég byrja á því að drekka sítrónu- eða limevatn verða alltaf betri. Þetta er eitt einfaldasta en áhrifaríkasta ráðið sem ég hef reynt til að bæta orku og vellíðan, þó það geti hljómað ótrúlega. Netið er uppfullt af fullyrðingum um áhrif þess að drekka sítrónuvatn á morgnana og ég veit ekki hverjar … Continue reading →

sumarsmoothie

Sólarskammtur í glasi

Ég spurði fylgjendur Hugmynda að hollustu á Facebook hver þeirra uppáhalds smoothiehráefni væru og fékk fjöldan allan af svörum. Að því loknu tók ég saman tölfræðina og bjó til þennan sumarlega og ljúffenga drykk úr tveimur vinsælustu hráefnunum, mangó og jarðarberjum, að viðbættri sítrónu, kókosvatni og myntu. Allir þeir sem hafa fengið að smakka svona … Continue reading →

súkkulaðiskál

Sparisúkkulaði

Páskasúkkulaðið þarf ekki endilega að vera í formi eggs  Ég bræddi dökkt, lífrænt súkkulaði, hellti því yfir bökunarpappír og skvetti svo yfir það nokkrum línum af hreinu heslihnetumauki. Dró línurnar svo aðeins til og kældi vel áður en ég braut plötuna niður í skál. Einfalt og ljúffengt – gleðilega páska!

Page 1 of 212