Þessi bragðgóði drykkur kemur alltaf freyðandi og ískaldur úr blandaranum og ég hressist öll við bara að horfa á hann streyma í glasið mitt því ég veit hvað er í vændum!
Í hvert sinn sem ég er þreytt seinnipartinn eða finnst athyglisgáfan ekki vera upp á sitt besta finnst mér æðislegt að fá mér svona ískaldan og frískandi andoxunarþeyting. Hann er bara eitthvað töfrandi og klikkar aldrei á því að fylla mig orku og nýjum krafti.
Þessi töfrandi hressingardrykkur er frekar auðmeltur og þynnri en margir aðrir þeytingar, sem gerir hann líkari svaladrykk en máltíð. Fullkomið millimál eða hressing hvenær sem er.
Hráefni
- 1,5 dl gulrótarsafi
- 1,5 dl haframjólk
- 1 dl frosið mangó
- 1 dl bláber
- 1 msk safi úr lime
- 1 msk hampfræ
- 1 msk NOW Fruit&Greens ofurduft
Leiðbeiningar
- Settu allt saman í blandara og láttu hann ganga þar til þetta verður að silkimjúkum og freyðandi drykk.
- Lokaðu augunum, taktu stóran sopa og finndu hvernig orkan hríslast um æðarnar 🙂
