Sólarskammtur í glasi

Sólarskammtur í glasi

Ég spurði fylgjendur Hugmynda að hollustu á Facebook hver þeirra uppáhalds smoothiehráefni væru og fékk fjöldan allan af svörum. Að því loknu tók ég saman tölfræðina og bjó til þennan sumarlega og ljúffenga drykk úr tveimur vinsælustu hráefnunum, mangó og jarðarberjum, að viðbættri sítrónu, kókosvatni og myntu. Allir þeir sem hafa fengið að smakka svona sólardrykk hjá mér hafa hreinlega emjað úr óvæntri bragðlaukagleði svo þú bara verður að prófa við fyrsta tækifæri!

Fáðu þér glas fullt af næringu, orku, andoxun og óteljandi mörgum plöntunæringarefnum úr ávöxtum hvenær sem þig langar að drekka í þig sólarskammt eða njóta ljúffengs og svalandi drykkjar.

Hráefni

  • 1 mangó
  • 1,5 dl jarðarber
  • 1/4 – 1/2 lífræn sítróna
  • 200 ml kókosvatn
  • 2 stönglar fersk mynta

Leiðbeiningar

  1. Blanda og Njóta!

Myntan setur algjörlega punktinn yfir i-ið og kókosvatnið er næringarríkur lúxus sem ég leyfi mér oft í drykki. Niðurstaðan er frábær og hentar dásamlega vel í íspinnaform fyrir stóra sem smáa.

Skál í botn og megi sumarið verða ykkur hamingju- og næringarríkt!