Gleðilegan jólaundirbúning! Hér finnurðu innkaupalista yfir allt sem til þarf í þriggja rétta jólamálsverð Hugmynda að hollustu: Bakað hummus með súrsætum perum og sólþurrkaðri tómatasósu Hnetusteik með sætkartöflumús, sérrýsteiktum sveppum og trönuberjasósu Súkkulaðiganache með heslihnetumauki og ferskum berjum Til að létta þér lífið er ég líka með myndir af þeim vörum sem gætu verið nýjar … Continue reading →
Ég hef mjög oft verið spurð að því hvað ég borði á jólunum og lengi vel átti ég ekkert svar á reiðum höndum. Sannleikurinn er sá að ég hef oft búið mér til eitthvað úr því sem er til í ísskápnum á aðfanga- og jóladag, alveg laus við hið hátíðlega matarstress. Stundum hef ég haft … Continue reading →
Það er eitthvað við sérbakaða matarskammta sem kitlar mig í hjartað og mér finnst ótrúlega gaman að gera fallega framsettar máltíðir úr einföldum hráefnum. Það er ekki flækjustigið eða langir hráefnalistar sem skapa góðar máltíðir heldur gæðin og samsetningin. Þessi réttur er upplagður kvöldverður á dimmum, köldum mánudegi og fellur vel í kramið hjá bæði … Continue reading →
Ég er lítið fyrir hefðbundnar pizzur en er þeim mun spenntari fyrir óhefðbundnari útgáfum. Sennilega hef ég aldrei gert sömu pizzuna tvisvar en botninn er alltaf eins og er algjört æði. Stökkur, þunnur og passlega bragðmikill til að bera uppi spennandi bragðtegundir en nógu hlutlaus til að næstum því hvað sem er passar vel með … Continue reading →
Fólk hefur skiptar skoðanir um bragðgæði eggaldins, enda er hægt að elda bæði vondan mat og svo afar ljúffengan úr þessu skemmtilega hráefni. Þegar vel tekst til er þetta eitt ljúffengasta hráefni sem náttúran býður upp á og áferðin er alveg undursamleg. Ég hef mikinn áhuga á því að stuðla að upprisu eggaldins sem lúxushráefnis … Continue reading →
Hollusta getur verið svo ótrúlega þægileg og fljótleg!Hér eru eggaldinsneiðar bakaðar í lífrænni Biona basil-tómatsósu. Með þeim eru nýjar íslenskar kartöflur sem voru soðnar og stappaðar gróflega saman við lífrænar hvítar baunir frá Himneskri hollustu ásamt hvítlauk og ferskum basil. Klettasalat sett með á diskinn og voilá! Næst þegar þú ferð að versla, kíktu þá … Continue reading →