Ég elska hrákökur og ég elska einfaldleika jafnvel enn meira. Best af öllu þykir mér að geta átt ljúffenga og næringarríka köku í frystinum sem er hægt að grípa í og borða frosna ef því er að skipta! Þessi kaka er t.d. afar ljúffeng beint úr frystinum og getur auðveldlega komið í staðinn fyrir ís … Continue reading →
Ég verð sífellt fráhverfari sætum kökum og hefðbundnu góðgæti svo ég baka afskaplega sjaldan. Hins vegar rak ég augun í alveg hreint ómótstæðilega uppskrift sem mig langaði að prófa – en ekki fyrr en ég hafði úthugsað hvernig ég gæti lagað hana enn frekar að mínum einfalda smekk. Ég reyni alltaf að hafa sem flest innihaldsefni næringarrík … Continue reading →
Í anda þeirrar umræðu sem hefur sprottið upp undanfarna daga, um mikilvægi þess að nýta allan mat og henda sem minnstu, deili ég þessari æðislegu uppskrift! Á netinu má finna ótal útgáfur af svona banana-hafrakökum og í raun eru öll hlutföll hafra og banana tilraunarinnar virði – og auðvitað ekkert nema spennandi að prófa ýmsar … Continue reading →