Chia grautar eru einstaklega vinsælir um þessar mundir, ýmist sem morgunmatur, eftirréttur eða millimál. Þessi skemmtilegu fræ eru auðvitað einstaklega næringarrík og hafa þann eiginleika að þenjast út og gefa frá sér þykkan vökva sem breytir vökva í hálfgerðan búðing. Margir bæta þeim t.d. í þeytinga eða hræra út í hræragraut á hverjum degi til að … Continue reading →
Kínóa er eitt uppáhalds hráefnið mitt vegna þess hversu fjölbreyttir notkunarmöguleikarnir eru, bragðið ljúffengt og næringargildið hátt. Kínóa er mjög próteinríkt og inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar auk þess að færa líkamanum fjöldan allan af vítamínum, steinefnum og plöntunæringarefnum (e. phytochemicals). Ég nota heilt kínóa t.d. sem grunn í máltíðir eða salöt, sem meðlæti og í … Continue reading →
Ég hef ekki smakkað hefðbundnar sörur í hátt í áratug og hef lítið saknað þeirra. Undanfarið hef ég hins vegar séð mikla sörustemmingu í kringum mig og ákvað að láta reyna á það hvort mér tækist að gera ljúffengar sörur úr heilnæmum hráefnum sem væru jafnframt án eggja, mjólkur og glútens. Útkoman er dásamleg og … Continue reading →
Ég er undanfarið búin að gera tilraunir með bygg og möndlumjólk í þeim tilgangi að búa til stórfenglega ljúffengan og næringarríkan morgungraut. Þessi blanda hefur svo sannarlega ekki valdið vonbrigðum og passar vel með hinum ýmsu ávöxtum og hnetum. Þegar ég var að sjóða byggið mitt í dag tók hins vegar eftirréttasælkerinn völdin og ég … Continue reading →
Ég elska hrákökur og ég elska einfaldleika jafnvel enn meira. Best af öllu þykir mér að geta átt ljúffenga og næringarríka köku í frystinum sem er hægt að grípa í og borða frosna ef því er að skipta! Þessi kaka er t.d. afar ljúffeng beint úr frystinum og getur auðveldlega komið í staðinn fyrir ís … Continue reading →
Bollur eru ómissandi í lífi hvers Íslendings þessa dagana en ekki hafa allir kost á að borða þessar hefðbundnu sem fást í öllum bakaríum og verslunum. Ég hef sjálf ekki borðað egg eða mjólkurvörur í tæp tvö ár og í einu skiptin sem mér finnst ég virkilega fara á mis við eitthvað er þessa örfáa … Continue reading →