Kínóa er eitt uppáhalds hráefnið mitt vegna þess hversu fjölbreyttir notkunarmöguleikarnir eru, bragðið ljúffengt og næringargildið hátt. Kínóa er mjög próteinríkt og inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar auk þess að færa líkamanum fjöldan allan af vítamínum, steinefnum og plöntunæringarefnum (e. phytochemicals). Ég nota heilt kínóa t.d. sem grunn í máltíðir eða salöt, sem meðlæti og í … Continue reading →
Hefðir þú getað trúað því jólagrauturinn klassíski (en dálítið syndsamlegi), ris a la mande, gæti verið stútfullur af næringu og hollustu án þess að fórna nokkru af bragðgæðunum? Ég þróaði alveg dásamlega uppskrift (þó ég segi sjálf frá) sem birtist í jólablaði Nettó 2013. Hann fékk frábæra dóma þá og ég er búin að fá … Continue reading →
Ég hef ekki smakkað hefðbundnar sörur í hátt í áratug og hef lítið saknað þeirra. Undanfarið hef ég hins vegar séð mikla sörustemmingu í kringum mig og ákvað að láta reyna á það hvort mér tækist að gera ljúffengar sörur úr heilnæmum hráefnum sem væru jafnframt án eggja, mjólkur og glútens. Útkoman er dásamleg og … Continue reading →
Ef þér finnst hrákökur góðar þá gætu þessar dúllur komið skemmtilega á óvart! Þær eru dálítið óhefðbundnar að því leyti að oft er hneturíkur botn og kremkennd fylling í hrákökum en hér er safarík kaka toppuð með möndlu- og kókoskremi. Þetta er óneitanlega gulrótarkenndara bakkelsi en þessar hefðbundnu gulrótarkökur sem fást í öðru hverju bakaríi, … Continue reading →
Manstu eftir hinum dæmigerða ananasfrómas níunda áratugarins? Hann var búinn til úr einhvers konar dufti, þeyttum rjóma, matarlími og nokkrum bitum af niðursoðnum ananas til skrauts. Og hann bragðaðist DÁSAMLEGA. Ég get ennþá rifjað upp bragðið af þessum hefðbundna jóladesert æsku minnar en það eru sennilega komin á annan tug ára síðan ég fékk það af … Continue reading →
Stundum þegar ég er í stuði á kvöldin hendi ég saman dásamlegum graut sem fær að malla sig sjálfur inni í ísskáp yfir nóttina.Útkoman er undantekningarlaust ljúffeng og það er engin uppskrift. Galdurinn er að nota grófasta haframjöl sem þið komið höndum yfir, setja það í skál ásamt vökva að eigin vali í hlutföllunum 1:2 … Continue reading →