Fyrst eftir að ég fór sjálf að sjá um mínar eigin máltíðir var pasta að ryðja sér til rúms sem heilsufæði og heilu bækurnar voru gefnar út um ágæti þess sem uppistöðu máltíða. Mikið hefur breyst síðan þá og því miður er pasta gjarnan litið hornauga og það jafnvel talið til ruslfæðis. Þessi einfaldi og ljúffengi matur er hins vegar ekki allur eins því það er langur vegur á milli hvíts hveitipasta og heilkornapasta á við spelt penne pastað sem ég notaði í þetta fallega salat. Í það er allt speltkornið notað og með því að byggja salat upp í kringum þessi dásamlegu penne krútt fá önnur hráefni allt annað samhengi og upplifunin af máltíðinni gjörbreytist. Hér nota ég t.d. fínsaxaðan ferskan hvítlauk, saxaða sólþurrkaða tómata og ferskt rautt chili, sem allt saman loðir á einhvern undraverðan hátt við pastað. Þannig bindur pastað allt þetta ólíka bragð saman í fullkomna slaufu með brakandi grænmeti og hnetum sem setja punktinn yfir i-ið.
Þessi máltíð er nær óbreytt eftir uppskrift Helgu Maríu sem gerði þessa flottu nestishugmynd fyrir Heilsu- og lífsstílsblað Nettó þetta haustið. Breytingarnar sem ég gerði voru afar smávægilegar og því á ég lítinn heiður að þessari samsetningu. Það stöðvar mig þó ekki í útbreiðslu bragðgæðaboðskaparins og hvet ég þig til að skoða fleiri girnilegar uppskriftir á hennar flotta uppskriftavef, www.helgamaria.com
Þetta er svo einfalt salat að það er eiginlega engin þörf á uppskrift. Nær allar tegundir grænmetis færu vel í þessum rétti og um að gera að sleppa hugmyndafluginu lausu.
Hráefni
- 150 gr heilkorna spelt penne
- 1 lítill brokkolíhaus
- 1/2 paprika
- 2 vorlaukar
- 1/2 rautt chili
- 2 hvítlauksgeirar
- Handfylli af kasjúhnetum
- Handfylli af sólþurrkuðum tómötum
- Handfylli af red chard salati eða spínati
Leiðbeiningar
- Sjóddu pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka og skerðu og saxaðu önnur hráefniniður á meðan.
- Helltu vatninu af pastanu og settu brokkolí, hvítlauk og sólþurrkaða tómata ofan í pottinn með pastanu, geymdu á kaldri hellu með lokinu á í 2-3 mínútur.
- Leggðu handfylli af Red chard salati í skál (má nota spínat eða grænkál) og helltu svo pastablöndunni yfir ásamt ferska grænmetinu og hnetunum.
Þetta salat er svo fullt af ljúffengum hráefnum að engin þörf er á sósu eða dressingu af nokkru tagi. Prófaðu alls konar útfærslur eftir því hvaða hráefni þú vilt nýta í hvert sinn og finndu þína uppáhalds samsetningu!
