Ég hef tekið eftir því að það er vinsælt að velta vöngum yfir því hvernig skuli nýta aldraða banana. Jafnframt hef ég orðið vör við það að hið staðlaða svar við þeim heilabrotum er „bakaðu bananabrauð!“. Svo komst ég að því að ein eftirsóttasta uppskrift internetsins alls er einmitt bananabrauð! Það er eitt af allra … Continue reading →
Útlenskir matarbloggarar eru æstir í mjólkurhristinga af öllum mögulegum gerðum og ég er viss um að þeir eru hver öðrum ljúffengari. Ég drekk hins vegar ekki mjólk og veit ekki alveg með hollustugildi allra þessa sykruðu mjólkuruppskrifta svo ég tók málin í eigin hendur! Mínir af-rjómuðu og ósætu bragðlaukar elska þennan freyðandi þeyting og hann … Continue reading →
Kínóa er ótrúlegt hráefni sem sniðugt er að eiga tilbúið í ísskáp og nota við hin ýmsu tilefni. Það er frábært í grauta sem þennan en svo er hægt að sjóða það til notkunar líkt og hrísgrjón, gera úr því buff og bollur, hræra saman við súpur og grauta eða jafnvel bæta soðnu kínóa í … Continue reading →
Nýlega keypti ég mér nokkra poka af makadamíahnetum sem hreinlega kölluðu á mig, þær voru svo ómótstæðilegar og girnilegar. Eftir að hafa geymt þær inni í skáp í nokkra daga og velt fyrir mér hvaða ljúfmeti ég ætti að gera úr þeim fann ég á netinu fjölda uppskrifta að hráfæðiskaramellu sem voru svo einfaldar að … Continue reading →
Ég elska hrákökur og ég elska einfaldleika jafnvel enn meira. Best af öllu þykir mér að geta átt ljúffenga og næringarríka köku í frystinum sem er hægt að grípa í og borða frosna ef því er að skipta! Þessi kaka er t.d. afar ljúffeng beint úr frystinum og getur auðveldlega komið í staðinn fyrir ís … Continue reading →
Ef þér finnst hrákökur góðar þá gætu þessar dúllur komið skemmtilega á óvart! Þær eru dálítið óhefðbundnar að því leyti að oft er hneturíkur botn og kremkennd fylling í hrákökum en hér er safarík kaka toppuð með möndlu- og kókoskremi. Þetta er óneitanlega gulrótarkenndara bakkelsi en þessar hefðbundnu gulrótarkökur sem fást í öðru hverju bakaríi, … Continue reading →
Manstu eftir hinum dæmigerða ananasfrómas níunda áratugarins? Hann var búinn til úr einhvers konar dufti, þeyttum rjóma, matarlími og nokkrum bitum af niðursoðnum ananas til skrauts. Og hann bragðaðist DÁSAMLEGA. Ég get ennþá rifjað upp bragðið af þessum hefðbundna jóladesert æsku minnar en það eru sennilega komin á annan tug ára síðan ég fékk það af … Continue reading →
Þegar lífið gefur mér lífræna tómata þá bý ég til dásamlega sumarsúpu! Þessi varð nú samt eiginlega til fyrir algjöra slysni hjá mér. Ég hafði farið í búð og eins – og ég hef tilhneigingu til að gera – kom ég heim með ógrynnin öll af girnilegum og freistandi hráefnum. Ég stóð uppi með fullt eldhús … Continue reading →
Ég verð sífellt fráhverfari sætum kökum og hefðbundnu góðgæti svo ég baka afskaplega sjaldan. Hins vegar rak ég augun í alveg hreint ómótstæðilega uppskrift sem mig langaði að prófa – en ekki fyrr en ég hafði úthugsað hvernig ég gæti lagað hana enn frekar að mínum einfalda smekk. Ég reyni alltaf að hafa sem flest innihaldsefni næringarrík … Continue reading →
Í anda þeirrar umræðu sem hefur sprottið upp undanfarna daga, um mikilvægi þess að nýta allan mat og henda sem minnstu, deili ég þessari æðislegu uppskrift! Á netinu má finna ótal útgáfur af svona banana-hafrakökum og í raun eru öll hlutföll hafra og banana tilraunarinnar virði – og auðvitað ekkert nema spennandi að prófa ýmsar … Continue reading →